English
A+
A-

Leit
Fréttir
Fréttir

14. 09. 2009

Kleifabergið aftur til veiða

Kleifaberg ÓF-2 hélt aftur til veiða í síðustu viku eftir fjögurra vikna stopp hjá  Slippnum á Akureyri.  Á þessum tíma var hefðbundnu viðhaldi sinnt, auk þess sem skipið var málað hátt og lágt í litum Brims. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er skipið glæsilegt í hinum nýja búningi.


Skipið er nú á veiðum við Íslandsstrendur að framleiða hágæða flök fyrir viðskiptavini sína sem bíða spenntir eftir næsta farmi enda áhöfnin á Kleifaberginu þekkt fyrir framúrskarandi framleiðslu.

Ljósmynd: Bragi Ragnarsson