
Þau skemmtilegu tíðindi bárust á dögunum að einn af starfsmönnum landvinnslu Brims hf. á Akureyri, hefði hlotið fyrstu verðlaun í ljósmyndasamkeppni evrópska Sundsambandsins (LEN) 2009.. Ljósmyndarinn, Sævar Geir Sigurjónsson, tók á móti verðlaununum við hátíðlega athöfn í tengslum við Evrópumeistaramótið í Tyrklandi í boð LEN, þann 10. desember síðastliðinn.
Við erum að vonum stolt af okkar manni og um leið og við óskum honum til hamingju með glæsilegan árangur, leyfum við rómaðri ljósmyndinni að fylgja með.
Ljósmynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

