
Í Reykjavík hefur sá háttur verið hafður á um nokkurt skeið að halda tvær hátíðir saman í heildar helgardagskrá Hátíðar hafsins. Annars vegar er um að ræða hátíð hafnarinnar og hins vegar Sjómannadaginn. Að þessu sinni fóru hátíðarhöldin að miklu leyti fram úti á Granda þar sem alls kyns uppákomur fundust í tjöldum af ýmsum stærðum og gerðum og verbúðirnar höfðu verið opnaðar fyrir hátíðahöldunum einnig.
Af þessu tilefni voru stærri skip Brims hf. við festar á Miðbakkanum en sjá má Brimnesið og Guðmund í Nesi á þessum myndum sem teknar eru af Sæbjörginni þar sem hún kemur inn að Grandabryggju. Norska flaggið á sér skýringu, en norskt varðskip sat í hatíðarbúiningi við Ægisgarð yfir helgina.
Var það mat manna að hátíðin hefði heppnast vel og þrátt fyrir rigningu síðari daginn fjölgaði fólki jafnt og þétt fram eftir degi og stemningin var orðin hin besta þó börn og eldra fólk væru orðin blaut og köld undir það síðasta.
Ljósmyndari: Elfar Bjarnason, tæknistjóri Brims

