
Á Akureyri var Sjómannadegi fagnað eins og annars staðar og Brim hf. hélt í þá venju að bjóða fyrrverandi og núverandi starfsfólki til kaffisamsætis í matsal fiskvinnslunnar að Fiskitanga 4.
Starfsfólk eldhússins hafði skreytt salinn og vandað til veitinganna svo góður rómur var gerður að og var opið hús um miðbik dagsins eða frá 15.30 til 17.00.
Á annað hundrað manns lét sjá sig og naut samverunnar, kynntust gömlum hetjum hafsins sem skörtuðu fálkaorðunni fyrir þátttöku í björgunaraðgerðum frá eldri tímum, aðrir mættu með börn og buru en allir virtust hafa nokkurt gaman af...enda í gildi enn að maður er manns gaman.
Ólafur Stefánsson vígreifur, en hann hefur séð um þrifin á vélum vinnslunnar síðan á 8da áratug.
Ljósmyndari: Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdarstjóri landvinnslunnar

