
Það vita ekki margir að í landvinnslu Brims á Akureyri eru tvö vel falin fjölskylduleyndarmál á bakvið starfsmannahópinn. Annars vegar eru þar starfandi þrír ættliðir í beinan kvenlegg og hins vegar þrír ættliðir í beinan karllegg. Við lögðum land undir fót og áttum stefnumót við fólkið. Í eldhúsinu er Védís Baldursdóttir, 9 barna móðir, sem starfað hefur þar í 23 ár. Dóttir hennar Ásta Garðarsdóttir hefur starfað hjá Brim um skeið og dóttir Ástu, Anna Karen, 18 ára Akureyrarmær, var nýlega fastráðin á sal. Við hittum þær mæðgur, Védísi og Ástu fyrir, en Anna Karen var fjarverandi þann dag og spurðum fyrst af öllu hvernig gengi að vinna saman.
..Það skarast nú lítið, þar sem ég er í eldhúsinu en dóttir mín er í vinnslunni," sagði Védís kankvís, ,,það er því erfitt fyrir mig að ætla að stjórna dóttur minni."
Ásta brosti við og sagði: ,,Ég get ótrufluð einbeitt mér að því að skera úr og hreinsa, eða pakka flugfiskinum, enda eldhúsið á annarri hæð."
Sp. Þannig það reynir ekki á vinnuandann að þið eruð allar þrjár saman?
Þær svara því báðar neitandi og segja að það sé einfaldlega alltaf svo mikið að gera að það sé nú lítið verið að spá í ættingjana.
Sp. Og er vinnuandinn góður?
,,Mjög góður í eldhúsinu" sagði Védís og brosti enn.
Ásta fór þá að hlæja og sagði: ,,Það er nú auðvelt að hafa góðan starfsanda þar sem bara tveir eru að vinna saman!" Svo hugsaði hún sig um og sagði: ,,Annars gengur þetta ótrúlega vel fyrir sig. Það er bara mikil vinna og á meðan allt er keyrt í föstum skorðum, og fólk veit hvert markmiðið er, er minna um hnökra í samskiptum."
Védís greip þá orðið og sagði: ,,Það er einmitt málið. Góð verkstjórn er lykilatriði. Og svo hefur mér fundist að hér ríki ákveðinn skilningur af hálfu yfirmanna. Það eru öll mál leyst af sanngirni og gegnumsneitt hef ég ekkert nema gott haft um staðinn að segja eftir öll þessi ár." Og enn hlær hún og bætir við: ,,Og svo veit maður alltaf hverjir þeirra vilja gjarnan laumast inn í eldhús og biðja um sætabrauðið."
Við þökkuðum þessum glaðsinna og jákvæðu mæðgum fyrir spjallið og hleyptum þeim aftur til vinnu sinnar. Þess má geta að eiginmaður Védísar, Garðar Helgason, hefur starfað hjá fyrirtækinu í 46 ár og Jónas, eiginmaður Ástu, hefur verið þar í 27 ár. Merkilegt nokk.

