English
A+
A-

Leit
Fréttir
Fréttir

02. 07. 2009

Fréttatilkynning

Vegna umfjöllunar í Kastljósi og öðrum fjölmiðlum síðustu daga, þar sem vikið er að fyrirtækinu Brimi hf. og skipi í eigu Brims hf., vill fyrirtækið taka eftirfarandi fram:

Hjá Brimi starfa 350 manns. Fyrirtækið gerir út 6 fiskiskip. Á síðasta fiskveiðiári, 1. september 2007 til 31. ágústs 2008, voru veiðiheimildir Brims hf. 20.824 tonn. Sama fiskveiðiár veiddu skip Brims 21.441 tonn, það er að segja, 617 tonnum meira en kvótaúthlutunin það ár bauð.

Umfjöllun fjölmiðla um tekjur útgerða vegna kvótaleigu, sem almennt var til þess fallin að tengja sjávarútvegsfyrirtækinu Brimi hf. og einu skipa félagsins, er eins og ofangreindar upplýsingar sýna, röng.

Harma ber að slík umfjöllun sé sett fram í ábyrgum fjölmiðlum án fullnægjandi rannsóknarvinnu.