28. 12 2006
Vegna dóms Félagsdóms um hafnarfrí hefur Brim hf gefið út eftirfarandi yfirlýsingu:
Í áratugi hafa togarar frá Norðurlandi millilandað afla á Austfjarðarhöfnum. Ástæðan fyrir þessu var sú að siglingin til heimahafnar, Akureyrar í þessu tilfelli, var of löng og hagstæðara var fyrir áhöfn og útgerð, að millilanda á Austfjarðarhöfnum á milli túra. Um þetta hefur ríkt munnleg samþykkt á milli áhafnar og útgerðar.
Allar útgerðir sem gera út ísfisktogara eru í sömu stöðu og Brim h.f. við niðurstöðu Félagsdóms. Ekki er séð hvort Félag vélstjóra og málmtæknimanna ætlar að gera févítiskröfu á aðrar útgerðir ísfisktogara, sem