English
A+
A-

Leit
Fyrirtækið
Tengsl við vísindin

  

Brim hf tekur þátt í nokkrum rannsóknarverkefnum í samvinnu við MATÍS.
 
1. Vannýtt prótein í frárennslisvatni frá fiskvinnslum.
Verkefnið mun skila tillögum að ferlum tl einangrunar á próteinum úr frárennsli, próteinum til beinnar nýtingar í aðrar afurðir og hráefni til þróunar á próteinafurðum. Samtímis fæst hreinna frárennslisvatn. Kanna á notkunarmöguleika prónteinanna út frá öryggi og tæknilegum eiginleikum þeirra og meta áhrif geymsluaðferðar á eiginleika þeirra. Mikið nýnæmi er fólgið í nýtingu fiskpróteina úr frárennslisvatni sem í landvinnslu en að öllu jöfnu eru próteinin nýtt í fóður eða þau tapast út í umhverfið.
2. Fóður fyrir þorsk.
Í verkefninu verður könnuð prótein- og orkuþörf þorsks á mismunandi aldursstigum. Markmið verkefnisins er að lækka hlut fóðurskostnaðar í þorskeldi og er verkefnið unnið í samstarfi við helstu aðila sem koma að fóðurrannsóknum og f´´oðurgerð fyrir þorsk á Norðurlöndunum. Áv inningur verkefnisins felst í auknu verðmæti sávarfangs og afraksturinn fóður sem tekur mið af næringar- og orkuþörf þrosks á mismunandi aldursstigum.
3. Áhrif undirkælingar á eðliseiginleika þorskvöðva.
Markmið verkefnisins er að rannsaka áhrif undirkælingar (0-(-4)°C) á eðliseiginleika þorskvöðva, ensímvirkni og saltupptöku. Einnig á að þróa nýja aðferðarfræði í matvælarannsóknum á Íslandi, NMR-mælitæki. Undirkæling getur dregið úr örveruvexti og þannig haft áhrif á skemmdarferla og geymsluþol fisks en ensím eru einnig mikilvægur þáttur m.t.t. niðurbrots í fiski við geymslu. Ef undirkæling er of mikil leiðir það til ísmyndunar í vöðva sem getur haft neikvæð áhrif m.a. á vatnsheldnieiginleika. Rannsökuð verða áhrif hitastigs (0-(-4)°C) á saltupptöku vöðvans. Fylgst verður með breytingum á ástandi vatns og ísmyndun í þorskvöðva eftir saltupptöku í kæliblöndu. Kannað verður hver áhrif undirkælingar eru á ensím en v irkni þeirra getur aukist við aukinn styrk uppleystra efna í ófrosnum hluta vatns og aðgengi að hvarfefnum vegna skemmda á frumuhimnum. Samanburður verður gerður á mismunandi kæliaðferðum sem nota má til að ná undirkælingu, vökvaís, krapaís, þurrís og kælimottu, ásamt því að meta áhrif af geymslutíma. Lagt verður mat á vatnsheldnieiginleika , stöðugleika próteina og skemmdarferla.
Gildi verkefnisins felst í uppbyggingu á vísindalegri þekkingu með því að auka skilning á áhrifum undirkælingar á eðliseiginleika, ensímvirkni og saltupptöku í fiskvöðva en tiltölulega lítið hefur verið rannsakað á því sviði. Niðurstöður munu nýtast sem þekkingargrunnur til áframahaldani rannsókna og til að bæta kæliferla, með því verður stuðlað að auknum og verðmætari útflutningi á ferskum fiski.
4. Samþætting kælirannsókna. [Kæli-bót]
Markmið verkefnis er að vera vettvangur þekkingar fyrir hámarks gæðamat í kæliaðferðum fyrir fiskafurðir. Það á að auka líkur á tryggingu gæða hráefnis og afurða og stuðla að hagnýtingu þessara upplýsinga fyrir íslenska framleiðendur á mörkuðum þeirra.
5. Notkun fiskpróteina í fiskiðnaði (NICe protein).
Markmið þessa norræna verkefnis er að bæta nýtingu á aukahráefni í fiskiðnaði með því að virkja markaðinn innan sjálfrar greinarinnar en stærsti markaðurinn fyrir unnin bætiefni úr aukahráefni frá fiskvinnslu er fiskvinnslan sjálf. Til þess að bætiefnin hafi réttu eiginleikana fyrir notkun í greininni er nauðsynlegt að skilgreina þarfir vinnslunnar og aðlaga síðan efnin (prótein, kítin, geltín) að þeim afurðum sem kemur til greina að nota efnin í. Þannig er hugsanlegt að betri rekstrargrundvöllur náist á notkun þessara efna og betri afkoma fyrirtækja.
6. Ferlastýring við hausaþurrkun. (Peningalykt - vinnuheiti)
Hér er reynt að finna leiðir til að minnka lykt við framleiðslu þurrkaðra afurða úr bolfiskvinnslu með aukinni stýringu á þurrkferlinu. Kröfur um lyktarminni framleiðslu hafa hækkað og því hefur reynst nauðsynlegt að vinna frekar að lausnum til úrbóta. Þar með er stuðlað að því að tryggja rekstur áframhaldandi framleiðslul á hefðbundnum þurrkuðum afurðum úr aukahráefni, sem stuðlar að auknum verðmætum sjávarafurða.