English
A+
A-

Leit
Vinnslan
Akureyri
  
Í starfsstöðvum Brims hf. við Eyjafjörð vinna alls um 160 manns við fiskvinnslu, stjórnun og í stoðdeildum.     
Í vinnslu félagsins á Akureyri eru unnar ferskar og frosnar afurðir. Vinnslan á Akureyri fór í gegnum gagngerar breytingar sumarið 2006 og þar er nú rekin hátæknivædd bolfiskvinnsla. Hinn nýi vélbúnaður hefur bætt bæði nýtingu og afköst í vinnslunni og þannig stuðlað að því að nýta þann afla sem að landi kemur eins vel og kostur er. Hluti afurða frá vinnslunni á Akureyri er fluttur út ferskur, aðallega inn á markaði í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Framleiðsla á ferskum afurðum hefur aukist mjög hratt undanfarin ár og er nú svo komið að um þriðjungur afurða fer ferskur með flugi á markað. Frosnar afurðir eru að stærstum hluta lausfrystir bitar sem fara á markaði í Evrópu og Norður Ameríku.
Á Akureyri er einnig rekin fullkomin pökkunarstöð þar sem hluta afurða er pakkað í neytendaumbúðir. Alls vinna þar um 120 manns við framleiðsluna.
Loks er rekið öflugt vélaverkstæði á Akureyri sem sér um viðhald á þeim skipum félagsins sem landa á Akureyri og ýmiss konar búnaði í vinnslunum.