
Laugafiskur er dótturfyrirtæki Brims hf og annast þurrkun allra hausa og hryggja sem til falla hjá félaginu. Laugafiskur var stofnsett 1988 en hefur verið rekið í núverandi mynd frá því um 2000 en um það leyti var allur búnaður til vinnslunnar endurnýjaður og er nú eins fullkominn og gerist í greininni.
Fiskur hefur verið þurrkaður um aldabil á Íslandi vegna hagstæðra skilyrða að hluta til, en með tæknivæðingunni hefur verið hægt að tryggja gæði vörunnar enn frekar. Laugafiskur leggur metnað í að fylgja hæstu kröfum markaðarins með því að fylgjast með og taka þátt í þróun vinnslunnar og með því að laða að hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Á Akranesi starfa 25 manns og 20 á Laugum.
Framleiðsla þurrkaðra fiskafurða hefur verið með ágætu móti undanfarin ár og hefur að öllu leyti verið seld á Nígeríumarkað. Nígería er eini markaðurinn fyrir þurrkaðar afurðir sem stendur og Laugafiskur er stærsti íslenski framleiðandinn en á auk þessa 45% hlut í hausaþurrkun í Færeyjum. Þetta þýðir að vöruþróunin sjálf er í beinu samhengi við þarfir Nígeríumarkaðar en hann gerir miklar gæðakröfur. Þar gegna þurrkaðar fiskafurðir sama hlutverki og íslensk kjötsúpa gerði á árum áður. Það er undirstaða matargerðar austur-Nígeríumanna að mörgu leyti.

